„Ég fór að gráta. Allir fóru að gráta,“ segir faðir yngsta drengsins sem bjargað var úr hellinum í Taílandi. Foreldrarnir fengu í gær loks að sjá syni sína í gegnum glervegg á gjörgæsludeild sjúkrahússins þar sem þeir verða næstu daga að jafna sig. Þeir höfðu ekki séð þá frá því að þeir fóru á fótboltaæfingu laugardaginn 23. júní eða tæpar þrjár vikur.
Chanin Viboonrungruang er yngstur drengjanna tólf. Hann er ellefu ára. Hann veifaði höndunum til foreldra sinna er hann sá þá við glervegginn á endurfundunum í gær.
„Ég vil færa öllum þeim sem komu að björgun sonar míns þakkir,“ segir faðir hans, Tanawat Viboonrungruang , í samtali við CNN. „Líka þeim sem hafa hjálpað honum að öðlast nýtt líf. Þetta er eins og endurfæðing.“
Móðir Chanins hrópaði nafn hans er hún sá hann loks liggjandi í sjúkrarúminu.
„Ég var svo hamingjusamur,“ segir faðir hans um að hafa loks fengið að sjá son sinn eftir allan þennan tíma.
Drengirnir verða á sjúkrahúsi í viku til viðbótar að því er fram kemur í frétt CNN. Foreldrarnir voru fyrir utan hellinn allan tímann á meðan björgunaraðgerðum stóð og höfðu kveikt á kertum. Nú hafast þau við á sjúkrahúsinu.
„Svo lengi sem hann er á lífi og heilbrigður þá er ég sáttur,“ segir faðir Chanins. Hann segir foreldrana hafa sagt syni sínum að hann sé sterkur og eigi eftir að komast í gegnum þetta. Nú bíða þau þess í ofvæni að fá að faðma hann.
Taílensk yfirvöld segja að drengirnir séu í góðu ásigkomulagi þrátt fyrir að hver og einn þeirra hafi lést um tvö kíló er þeir voru innlyksa í hellinum.