Forsetaskrifstofa Emmanuel Macron Frakklandsforseta greindi frá því í dag að starfsmaður forsetans, sem réðst á þátttakendur í mótmælum 1. maí, verði rekinn. Starfsmaðurinn Alexandre Benalla sætir nú varðhaldi, en greint var frá því í gær að hann sætti rannsókn hjá saksóknara eftir að myndskeið náðist af honum ráðast gegn tveimur mótmælendum í Parísarborg á verkalýsdeginum.
Benalla er aðstoðarmaður starfsmannastjóra Macron og hefur fyrst og fremst séð um öryggisráðstafanir fyrir opinber erindi forsetans. Hann var einnig yfir öryggismálum í kosningabaráttu Macron á síðasta ári.
Í myndskeiðinu sést Benalla bera hjálmgrímu lögreglu en er þó ekki í einkennisbúningi. Þá sést hann grípa um háls konu og draga hana niður nærliggjandi götu þar til þau hverfa bæði úr mynd. Stuttu síðar kemur Benalla svo aftur á vettvang þar sem hann ræðst á mann sem liggur á jörðinni.
Atvikið átti sér stað á vinsælum ferðamannastað í fimmta umdæmi borgarinnar og höfðu um það bil hundrað íbúar safnast saman í tilefni af verkalýðsdeginum. Fljótlega kom til átaka á milli mótmælenda og óeirðalögreglu.