Nokkrir leikmenn í NFL-deildinni hafa mótmælt þegar þjóðsöngur Bandaríkjanna er leikinn fyrir æfingaleiki en deildarkeppnin hefst í byrjun september.
Malcolm Jenkins og De'Vante Bausby, leikmenn Philadelphia Eagles, krepptu hnefann þegar þjóðsöngurinn var leikinn. Það sama gerðu Marwquise Goodwin, leikmaður San Francisco 49ers, og Robert Quinn, leikmaður Miami Dolphins. Kenny Stills og Albert Wilson, liðsfélagar Quinn, krupu þegar þjóðsöngurinn var leikinn.
Greint var frá því í vor að leikmenn sem krjúpa, þegar þjóðsöngurinn er spilaður, muni fá fjársekt. Þær áætlanir hafa verið settar í biðstöðu.
Colin Kaepernick var fyrstur til að mótmæla en fjöldi leikmanna neitaði að standa á meðan þjóðsöngurinn var leikinn á síðasta tímabili.
„Ég ætla ekki að standa upp til að sýna stolt gagnvart fána lands sem kúgar svarta og litað fólk. Fyrir mér er þetta stærra en fótboltinn og það væri sjálfselskt af mér að líta undan. Það liggja lík í götunni og fólk er að fara í launað leyfi og kemst upp með morð,“ sagði Kaepernick.