Loka varð Seattle-Tacoma alþjóðaflugvellinum í gærkvöldi eftir að maður stal flugvél og flaug af stað án heimildar frá flugturni. Maðurinn, sem var starfsmaður flugfélags, brotlenti vélinni á eyju skammt frá.
Fram kemur á vef AFP, að tvær F-15 orrustuþotur hafi veitt flugvélinni eftirför.
Yfirvöld segja að ekki hafi verið um hryðjuverk að ræða og að enginn annar hafi verið um borð í vélinni, sem er skrúfuhreyfilsvél af gerðinni Q400 og er í eigu Horizon Air. Vélin brotlenti á eyjunni Puget Sound.
„Þetta var ekki hryðjuverk. Það er staðfest. Þetta var einn maður í sjálfsvígshugleiðingum. Við vitum hver þetta er. Enginn annar tengist málinu,“ sagði lögreglustjórinn í Pierce-sýslu.
Flugmaðurinn er sagður vera 29 ára gamall karlmaður sem bjó í sýslunni.
Sjónvarvottar hafa birt myndskeið sem sýnir vélina hringsóla við flugvöllinn og fljúga síðan lágflug yfir sjónum.
#BREAKING Alaska Airlines says it is aware of an incident involving an unauthorized take-off of a Horizon Air plane from Seattle-Tacoma International Airport. This video was taken by a woman who lives south of the airport. She says this is the plane. (Courtney Jensen Junka) pic.twitter.com/Zh3E4aGfSk
— Fox26 News (@KMPHFOX26) August 11, 2018
Fram kemur í bandarískum fjölmiðlum að maðurinn hafi starfað sem flugvirki.
Þá kemur fram að starfsemi á flugvellinum í Seattle sé nú aftur komin í samt horf eftir atvikið.