Philip Wilson, fyrrverandi erkibiskup kaþólsku kirkjunnar í Ástralíu, hefur verið gert að sæta 12 mánaða stofufangelsi fyrir að að halda barnaníði innan kirkjunnar leyndu á áttunda áratug síðustu aldar, að því er BBC greinir frá.
Dómsuppkvaðning yfir Wilson var í dag, en hann er þar með sá hæst setti innan kaþólsku kirkjunnar sem dæmdur hefur verið fyrir slíkan glæp. Úrskurður ástralska dómstólsins felur þó í sér að Wilson mun ekki þurfa að sitja í fangelsi. Honum er hins vegar gert að hefja afplánun strax á heimili ættingja, auk þess að vera undir rafrænu eftirliti.
Frans páfi féllst í síðasta mánuði á afsögn Wilsons.
https://www.mbl.is/frettir/erlent/2018/07/30/pafi_fellst_a_afsogn_astralsks_erkibiskups/
Er hann yfirgaf dómsalinn í dag brást Wilson ekki við kröfu eins fórnarlamba kynferðisofbeldisins, sem krafði hann um afsökunarbeiðni.
Í gegnum réttarhöldin hefur Wilson alfarið neitað að sér hafi verið kunnugt um að presturinn James Patrick Fletcher hafi beitt altarisdrengi kynferðisofbeldi á áttunda áratug síðust aldar. Dómstóll úrskurðaði hins vegar í maí á þessu ári að fórnarlömb ofbeldisins hefðu látið Wilson vita, en hann hefði látið hjá líða að tilkynna það.