Tveir særðust er bíl var ekið á öryggishindranir við breska þinghúsið í London í morgun. Breska dagblaðið Guardian greinir frá því að báðir hinna slösuðu hafi verið hjólreiðamenn sem orðið hafi fyrir bílnum áður en hann lenti á hindrununum.
Mikið lögreglulið er á vettvangi og var götum og lestarstöð í næsta nágrenni lokað. Meiðsl hjólreiðamannanna eru ekki sögð vera lífshættuleg.
Lögreglumenn umkringdu bílinn fljótlega eftir atvikið og handtóku ökumanninn.
Bresk yfirvöld hafa ekki gefið upp hvort um hryðjuverk hafi verið að ræða, en hryðjuverkadeild Scotland Yard leiðir rannsóknina og segir málið vera rannsakað með „opnum huga“.
Nokkur fjöldi sjónarvotta á vettvangi segir hins vegar að svo virðist sem silfurlitum bílnum hafi viljandi verið ekið á fólkið. „Ég held að þetta hafi verið viljandi,“ segir Ewalina Ochab. „Bíllinn ók hratt í átt að hindrununum.“
Sjálf var hún á gangstéttinni hinum megin vegarins. „Ég heyrði hávaða og einhver öskraði. Ég sneri mér við og sá þá silfurlitan bíl aka mjög hratt, jafnvel á gangstéttinni, á rimlagrindverkið.“
Vopnuð lögregla, sjúkrabílar og slökkvilið var fljótt á vettvang og myndir hafa verið birtar á samfélagsmiðlum sem sýna mann í handjárnum leiddan á brott af lögreglu. Borgarstjóri London, Sadiq Khan, segist vera í stöðugðu sambandi við lögreglu vegna málsins.
Búkkar úr steinsteypu og stáli umkringja breska þinghúsið. Var þeim komið þar fyrir eftir að Khalid Masood ók bíl inn í mannfjölda við Westminster-brúna í mars 2017 með þeim afleiðingum að fjórir létust.