Frans páfi styður fórnarlömb kynferðisofbeldis af hálfu kaþólskra presta í Pennsylvaníu-ríki í Bandaríkjunum, að því er fram kemur í yfirlýsingu frá Vatíkaninu. Kaþólska kirkjan segist vilja hlusta á fórnarlömbin, sem eru yfir 1.000 talsins og voru misnotuð af yfir 300 prestum í ríkinu á sjö áratuga tímabili.
Í yfirlýsingu Vatíkansins segir að ofbeldinu sem lýst er í skýrslunni sem birtist á þriðjudag verði lýst með orðunum „skömm“ og „sorg“. Ofbeldið er fordæmt og gjörðir prestanna sagðar bæði glæpsamlegar og siðferðilega rangar.
„Fórnarlömbin ættu að vita að páfinn er með þeim í liði,“ segir jafnframt í yfirlýsingunni.
Þar sem „nánast engin málanna“ sem fjallað er um í skýrslunni eru yngri en frá árinu 2002, virðist Vatíkinið þó sjá ljósa bletti í því svartnætti sem nú umlykur kaþólsku kirkjuna vestanhafs.
Skýrslan er sögð sýna það sama og fyrri athuganir á kynferðisofbeldi innan kirkjunnar í Bandaríkjunum, að átak sem ráðist var í til að uppræta kynferðisofbeldi af hálfu presta á hendur börnum í upphafi aldar, virðist vera að bera árangur.