„Í raun og veru ætti þetta alls ekki að geta gerst,“ segir Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður um brunann á Þjóðminjasafni Brasilíu. Tjónið segir hún ekki bara bundið við Brasilíu heldur séu slík verðmæti hluti af heildarmenningararfi alþjóðasamfélagsins.
Eftir brunann hefur verið bent á að safnið hafi verið að glíma við niðurskurð á fjárframlögum en Margrét segir það eitt og sér ekki geta útskýrt tjónið sem varð á safninu. „Það vekur furðu mína að svona mikið tjón geti orðið í einu vetfangi,“ segir Margrét og á við hvernig staðið var að brunavörnum og viðbragðsáætlunum safnsins.
Ljóst sé að bruninn eigi eftir að fá mikla umfjöllun á næstu misserum á meðal þeirra sem vinni að varðveislu menningarverðmæta. Í myndskeiðinu er rætt við Margréti um brunann.