Meðlimur hljómsveitarinnar Pussy Riot hefur náð meðvitund á nýjan leik og er kominn af gjörgæslu eftir að hafa verið fluttur á sjúkrahús vegna hugsanlegrar eitrunar.
„Petya (Pyotr Verzilov) hefur náð meðvitund aftur,“ sagði Veronika Nikulshina, kærasta hans, sem er einnig í hljómsveitinni.
Hún bætti við að þótt Verzilov hefði verið færður af gjörgæsludeild væri hann enn haldinn ofskynjunum og væri með óráði.
Nikulshina sagði að eitrað hafi verið fyrir Verzilov, sem er þrítugur, með stórum lyfjaskammti.
Verzilov veiktist í kjölfar réttarhalda á þriðjudag þar sem aðgerðarsinnar úr Pussy Riot voru fyrir dómi fyrir að hafa ruðst inn á leikvanginn á úrslitaleik HM í Rússlandi í sumar.