Breska lögreglan segir ekkert benda til þess að taugaeitrið Novichok hafi átt þátt í því að karl og kona veiktust skyndilega á veitingastað í Salisbury í gærkvöldi, að því er BBC greinir frá. Mikill viðbúnaður var á staðnum fyrst eftir að atvikið kom upp og lokaði lögregla staðnum og stóru svæði umhverfis hann. Dregið hefur verið úr öllum viðbúnaði.
Veitingastaðurinn Prezzo er staðsettur á High Street í Salisbury, skammt frá Queen Elizabeth Gardens þar sem hin 44 ára gamla Dawn Sturgess komst í snertingu við taugaeitrið Novichok í lok júní sem leiddi hana að lokum til dauða.
Sergei Skripal, fyrrverandi rússneskur gagnnjósnari, og Yulia dóttir hans veiktust einnig eftir að hafa komist í snertingu við sama taugaeitur, en í frétt Sky News kemur fram að þau hafi snætt á veitingahúsi Zizzi-keðjunnar, um 300 metra frá veitingastað Prezzo.
Auk fjögurra sjúkrabíla var sérstakt eiturefnaviðbragðsteymi sent á vettvang.