Börnum á flótta sem koma í flóttamannabúðir á eyjum við Grikkland hefur fjölgað um þriðjung frá því í fyrra. Yfir sjö þúsund börn, um 850 börn á mánuði að meðaltali, hafa lifað af hættuför yfir hafið og komið til grísku eyjanna það sem af er ári. Eftir því sem fjöldinn eykst verða aðstæður í miðstöðvunum sem hýsa börnin hættulegri.
Skráningarmiðstöð fyrir þá hælisleitendur og flóttamenn sem eru að reyna að komast til Evrópu hefur verið hýst á grísku eyjunni Lesbos, sem er skammt frá ströndum Tyrklands, frá 2015.
UNICEF greinir frá því að búist er við að börnum á flótta komi til með að fjölga eftir því sem líður á árið. UNICEF hefur miklar áhyggjur af ástandinu og kallar eftir því að ríki Evrópu vinni betur saman að því að tryggja öryggi og vernd barna og fólks á flótta.
Flóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna (UNHCR ) hefur hvatt yfirvöld í Grikklandi til að flýta flutningi til meginlandsins á þeim hælisleitendum á Lesbos sem taldir eru eiga möguleika á aðstoð, sérstaklega börnum, þar sem ástandið í móttökubúðunum á Lesbos, sem eru yfirfullar, sé komið að „suðupunkti“.
Um það bil 80 prósent þeirra 20.500 flóttamanna sem eru í móttökubúðum á grísku eyjunum, þar af fimm þúsund börn, þurfa að hafast við í óviðeigandi aðstæðum í yfirfullum búðum.
Samkvæmt grískum lögum eiga þeir sem leita aðstoðar í móttökubúðum ekki að eyða meira en 25 dögum í búðunum áður en þeim er veitt frekari aðstoð. Því hefur ekki tekist að framfylgja, þrátt fyrir vilja starfsmanna og sjálfboðaliða móttökubúðanna. Sum barnanna hafa verið í búðunum í yfir ár.
UNICEF hefur aðstoðað börn og fjölskyldur þeirra á flótta síðan 2016, meðal annars tryggt aðgengi að þjónustu, sálrænum stuðningi, fjölskyldusameiningu, aðgengi að heilbrigðisþjónustu og menntun.