Forsætisráðherra Nýja-Sjálands, Jacinda Ardern, flutti sína fyrstu ræðu hjá Sameinuðu þjóðunum í gær og með henni í för var dóttir hennar, Neve Te Aroha, en hún er aðeins þriggja mánaða gömul. Hún var hins vegar ekki í ræðustólnum með mömmu sinni því pabbi hennar, Clarke Gayford, hélt á Neve meðan á ræðuflutningnum stóð.
Ardern segir að eðlilega hafi dóttir hennar farið með til New York enda sé Neve yfirleitt skammt undan þegar Ardern er í vinnunni.
Clarke Gayford, sem starfar í sjónvarpi, er í fæðingarorlofi en Ardern sneri aftur til vinnu í forsætisráðuneytinu sex vikum eftir fæðingu Neve í sumar.
Hún segist vera svo heppin að eiga mann sem hafi möguleika á að sinna dóttur þeirra. Ég er mjög heppin því maðurinn minn hefur möguleika á að taka að sér stóran hluta ábyrgðarinnar á að annast nýfætt barn. Ekki séu allir foreldrar jafnheppnir í Nýja-Sjálandi. Ardern bendir réttilega á að Gayford sé ekki barnfóstra heldur foreldri litlu stúlkunnar.