Kröftug flóðbylgja skall á Sulawesi-eyju í Indónesíu í kjölfar jarðskjálfta að stærðinni 7,5 sem reið yfir Indónesíu klukkan 10:02 að íslenskum tíma.
Öldurnar náðu allt að tveggja metra hæð þegar flóðbylgjan náði landi við bæinn Palu á Sulawesi-eyju. Það gerðist skömmu eftir að yfirvöld höfðu aflétt flóðbylgjuviðvörun.
Upptök skjálftans voru á um sex kílómetra dýpi í Central Sulawesi-héraðinu sem er á Sulawesi-eyju. Almannavarnir landsins sendu út viðvörun um mögulega flóðbylgju stuttu eftir að skjálftinn reið yfir, en drógu viðvörunina til baka nokkru seinna.
Á myndskeiðum á samfélagsmiðlum má sjá fólk öskra og flýja. Greint hefur verið frá því að fimm hafi látist en ekki er ljóst hvort það var vegna jarðskjálftans eða flóðbylgjunnar.
Mörg hundruð létust í hrinu jarðskjálfta við eyjuna Lombok í Indónesíu í síðasta mánuði. 460 manns létust 5. ágúst þegar stærsti skjálftinn reið yfir.