Lögreglan í Slóvakíu hefur ákært þrjá menn fyrir morðið á rannsóknarblaðamanninum Jan Kuciak og unnustu hans.
Kuciak, sem var 27 ára, fannst látinn á heimili sínu í Bratislava ásamt unnustu sinni í lok febrúar. Talið er að morðið tengist störfum hans en Kuciak var að rannsaka spillingu í stjórnkerfi landsins þegar hann var myrtur og var hann að skrifa grein um tengsl ráðgjafa forsætisráðherrans við ítölsku mafíuna. Greinin birtist að honum látnum.
Þremenningar sem hafa verið ákærðir eru í hópi átta manns sem voru handteknir af lögreglu á fimmtudag í tengslum við rannsókn málsins. Hinum fimm hefur verið sleppt úr haldi. Breska ríkisútvarpið hefur eftir slóvöskum miðlum að einn hinna handteknu hafi tengsl við lögregluna þar í landi.
Tugþúsundir Slóvaka hafa mótmælt aðkomu stjórnvalda frá því að Kuciak og unnusta hans voru myrt í febrúar. Robert Fico, þáverandi forsætisráðherra Slóvakíu, sagði af sér í mars vegna málsins. Um fimm þúsund manns komu saman í Bratislava, höfuðborg Slóvakíu, í dag, þegar tilkynnt hafði verið um ákærurnar.