Paul Allen, annar af stofnendum tölvurisans Microsoft, er látinn eftir að hafa átt við veikindi að stríða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vulcan Inc. sem var send út fyrir hönd fjölskyldu hans.
Allen, sem var 65 ára gamall, lést í borginni Seattle eftir baráttu við krabbamein, að sögn CNBC.
„Bróðir minn var stórmerkilegur einstaklingur á öllum sviðum. Á meðan flestir þekktu Paul Allen vegna tæknimála og starfa hans í þágu góðgerðarmála þá var hann í okkar huga fyrst og fremst bróðir og frændi sem við elskuðum mikið,“ sagði systir hans Jody í yfirlýsingu.
„Fjölskylda Pauls og vinir nutu þeirrar blessunar að hafa kynnst húmor hans, hlýju, örlæti og hvernig hann lét sig málin varða. Á þessum tíma þegar við erum að upplifa mikinn missi og mikla sorg, eins og svo margir aðrir, erum við að eilífu þakklát fyrir umhyggjuna sem hann sýndi á hverjum degi og hvernig hann lét sig málin varða.“
Fyrr í þessu mánuði greindi Allen frá því að hann hefði gengist undir krabbameinsmeðferð vegna sama krabbameins og hann sigraðist á fyrir níu árum.
Allen var einn ríkasti maður heims og var í 21. sæti á lista Forbes yfir ríkustu menn heimsins þegar hann lést.
Hann var ásamt 185 öðrum á lista yfir þá sem hafa heitið því að gefa meirihluta auðæfa sinna til góðgerðarmála.
Glæsisnekkja Allens, Octopus, hefur verið tíður gestur hér á landi undanfarin ár og muna margir eftir henni við Reykjavíkurhöfn.