Hópur tæplega 3.000 Hondúrasbúa, sem ganga nú frá Hondúras til Bandaríkjanna í leit að betra lífi, hélt ferð sinni áfram í dag, en óeirðalögreglan náði að stöðva för hans í gær yfir landamærin frá Gvatemala til Mexíkó. AFP-fréttastofan segir frá.
Einhverjir höfðu komist yfir landamærin á föstudag en lögregla náði að hrekja flesta til baka, meðal annars með því að beita táragasi á hópinn. Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hafði fyrirskipað stjórnvöldum í bæði Gvatemala og Mexíkó og stöðva fólkið, og þakkaði í gær Mexíkó fyrir sitt framlag. Þá hafði hann hótað því að loka landamærum Mexíkó og Bandaríkjanna til að koma í veg fyrir að fólkið kæmist inn í landið.
Eftir að fólkið hafði verið stoppað af í gær reyndu þó sumir að komast á bátum eða syndandi yfir á sem skilur löndin að. Nú virðist hins vegar sem hópurinn sé lagður af stað aftur og freisti þess að komast yfir landamærin.
Yfirvöld í Mexíkó hafa lýst því yfir að þeir sem eru með gild vegabréf og vegabréfsáritun fái að komast inn í landið, en það á líklega við fáa í hópnum. Aðrir þurfi að sækja um hæli eða snúa til baka. Þeir sem reyni að komast ólöglega inn í landið verði færðir í varðhald og vísað úr landi.
Langflestir úr hópnum eru Hondúrasbúar sem ætla sér að ganga hátt í 5.000 kílómetra frá Hondúras til Bandaríkjanna, en fólkið er að flýja fátækt og ofbeldi í heimalandinu.