Þingkosningarnar í Bandaríkjunum sem fram fóru í nótt eru sögulegar fyrir margar sakir og í raun var vitað fyrir fram að kosningarnar færu í sögubækurnar. Aldrei hafa fleiri konur og hinsegin fólk verið í framboði og áhugi á kosningum á miðju kjörtímabili forseta hefur sjaldan verið meiri, sem sýndi sig í kjörsókninni, sem var um 50% og er sú besta í áratugi.
Helstu niðurstöður kosninganna eru að sjálfsögðu þær að demókratar náðu meirihluta í fulltrúadeildinni en repúblikanar styrktu stöðu sína í öldungadeildinni.
Ef rýnt er nánar í niðurstöðurnar má hins vegar finna margt merkilegt. Í aðdraganda kosninganna höfðu demókratar margir hverjir búið sig undir svokallaða bláa bylgju, þar sem flokkurinn myndi ná fjölda sæta á þinginu og góðum meirihluta. Það tókst, í fulltrúadeildinni, en ef nánar er að gáð mætti segja að um regnbogabyltingu sé að ræða, frekar en bláa bylgju, í ljósi fjölda kvenna og fulltrúa minnihlutahópa sem náðu kjöri.
Fyrir kosningarnar töluðu fjölmiðlar vestanhafs um að árið 2018 yrði ár konunnar en 256 konur voru á kjörseðlinum, 234 sóttust eftir þingsæti í fulltrúadeildinni og 22 eftir sæti í öldungadeildinni. Árið 1992 var einnig nefnt ár konunnar í Bandaríkjunum, þegar fjöldi kvenna fór í framboð í kjölfar framburðar Anitu Hill um kynferðislega áreitni fyrir framan dómaranefnd öldungadeildarinnar. Heitið var svo sannarlega réttnefni þar sem fjöldi kvenna á þingi tvöfaldaðist það ár.
Ekki hafa öll atkvæði verið talin í kosningunum en ljóst er að konum á þingi fjölgar og verða þær fleiri en 107, sem var heildartala kvenna á þingi á síðasta kjörtímabili.
Meðal kvenna sem munu taka sæti á þingi eru Alexandria Ocasio-Cortez og Abby Finkenauer, sem eiga það sameiginlegt að vera demókratar auk þess sem þeir verða yngstu konurnar sem taka sæti í fulltrúadeildinni í sögu Bandaríkjanna, en þær eru báðar 29 ára. Ocasio-Cortez hafði betur gegn repúblikananum Anthony Pappas í New York-ríki og Finkenauer sigraði Rob Blum, sitjandi þingmann fyrir Iowa.
Sharice Davids mun taka sæti í fulltrúadeildinni fyrir Kansas. Sigur Davids er merkilegur að mörgu leyti. Hún er 38 ára, frumbyggi og samkynheigð. Hún starfar sem lögmaður og er einnig fyrrverandi MMA-bardagakona.
Auk hennar var Deb Haaland kjörin á þing fyrir demókrata en þær tvær eru fyrstu frumbyggjakonurnar sem kjörnar eru á þing í Bandaríkjunum.
Þá eru demókratarnir Rashida Tlaib frá Michigan og Ilhan Omar frá Minnesota fyrstu konurnar sem eru múslimar sem ná kjöri í fulltrúadeildinni. Omar flúði borgarastyrjöldina í Sómalíu þegar hún var átta ára og dvaldi í fjögur ár í flóttamannabúðum í Kenýa áður en hún kom til Bandaríkjanna.
Í Texas náðu tvær konur af suður-amerískum uppruna kjöri, þær fyrstu í ríkinu. „Það er kominn tími til,“ segir Sylvia Garcia, önnur þingkonan. „En þetta snýst ekki um að vera fyrstur, þetta snýst um að vera bestur.“ Ásamt henni mun Veronica Escobar taka sæti í fulltrúadeildinni fyrir Texas.
Demókratinn Jared Polis var kjörinn ríkisstjóri í Colorado og er hann fyrsti samkynhneigði maðurinn sem hefur verið kjörinn í embætti ríkisstjóra.
Þá var demókratinn Janet Mills kjörinn ríkisstjóri Maine og er hún fyrsta konan sem gegnir því embætti. Hún tekur við keflinu af repúblikananum Paul LePage, sem hefur verið afar umdeildur fyrir ummæli sín sem ýta undir kynþáttafordóma.
Fjölmörg met féllu hvað varðar kjörsókn í þingkosningunum. Aldrei hafa fleiri greitt atkvæði utankjörfundar, eða 35 milljónir manns, samanborið við um 20 milljónir á sama tíma árið 2014.
Opinberar tölur um kjörsókn hafa ekki verið staðfestar en New York Times metur það svo að um 114 milljón manns hafi greitt atkvæði, samanborið við um 83 milljónir fyrir fjórum árum.
Byggt á umfjöllunum: