Allt ætlaði um koll að keyra á blaðamannafundi Donalds Trumps Bandaríkjaforseta í kvöld þegar hann ræddi niðurstöðu þingkosninganna sem fram fóru landinu í gær.
Forsetinn var léttur í lundu í byrjun fundarins og lýsti því yfir að hann hlakkaði til samstarfsins við demókrata í fulltrúadeildinni, sem náðu meirihluta í deildinni eftir nokkurt hlé.
Þegar Jim Acosta, fréttamaður CNN, kvað sér hljóðs á fundinum varð Trump skyndilega mjög reiður og brást illa við spurningum Acosta, sem snerust um hvernig Trump hefði notað innflytjendur sem vopn í kosningabaráttunni með því að segja þá vera með innrás í Bandaríkin.
„Ég held að þú ættir að stjórna CNN og leyfa mér að stjórna landinu,“ sagði Trump meðal annars. Acosta lét ekki segjast og hélt áfram að spyrja forsetann spurninga þar til aðstoðarmaður í Hvíta húsinu reyndi að láta fjarlægja hljóðnemann sem Acosta talaði í. Það gekk hins vegar ekki.
„CNN ætti að skammast sín fyrir þig. Þú ert dónalegur og hræðileg manneskja sem ætti ekki að vinna fyrir CNN,“ sagði Trump.
Þá greip annar fréttamaður inn í og fór að spyrja spurninga og fannst Trump nóg komið. „Þegar þið flytjið falskar fréttir, sem CNN gerir oft, eruð þið óvinir fólksins.“ Uppákomuna í heild sinni má sjá hér fyrir neðan: