Sjö karlar voru í gær dæmdir sekir um að hafa myrt hondúrska umhverfissinnann Bertu Cáceres en hún var skotin til bana árið 2016. Sjömenningarnir eiga yfir höfði sér allt að 30 ára fangelsi hver, samkvæmt niðurstöðu dómsins sem var kveðinn upp í höfuðborg Hondúras, Tegucigalpa, eftir sex vikna löng réttarhöld.
Cáceres var heimsþekkt fyrir baráttu sína í umhverfismálum. Hún var skotin til bana á heimili sínu í mars 2016 en árið áður hlaut Cáceres Goldman-verðlaunin, sem talin eru helstu verðlaun sem veitt eru þeim sem starfa í grasrótarsamtökum á sviði umhverfismála. Hún var verðlaunuð fyrir að leiða baráttu innfæddra (Lenca) gegn því að reist verði stífla fyrir vatnsaflsvirkjun sem hefði þýtt að stór svæði innfæddra hefðu farið undir vatn og eins hefði aðgengi íbúa að hreinu vatni spillst.
Dómararnir þrír í Tegucigalpa sakfelldu Sergio Rodriguez, sem er einn af yfirmönnum raforkufyrirtækisins Desarrollos Energeticos SA (DESA), fyrir að hafa skipulagt morðið en fyrirtækið byggði vatnsaflsvirkjunina og var það niðurstaða dómaranna að án efa hafi hann ásamt fyrrverandi öryggisstjóra DESA, Douglas Bustillo, og Mariano Diaz, sem er hermaður, skipulagt morðið. Þeir réðu fjóra leigumorðingja til að fremja ódæðið og brutust tveir menn inn á heimili hennar og skutu. Fengu þeir 4 þúsund Bandaríkjadali fyrir verkefnið.
Cáceres var 43 ára þegar hún var myrt en hún lét eftir sig fjögur börn. Henni hafði ítrekað verið hótað lífláti fyrir mótmæli sín. Hún var skotin að næturlagi á heimili sínu í bænum La Esperanza og í fyrstu var reynt að halda því fram að hún hafi verið drepin af innbrotsþjófum.