Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, segir kanadísk stjórnvöld ekki hafa neitt með það að gera að Meng Wanzhou, fjármálastjóri raftækjaframleiðandans Huawei, var handtekin í Kanada í byrjun mánaðarins.
Meng, sem jafnframt er varaformaður stjórnar fyrirtækisins og dóttir stofnanda þess, var handtekinn á flugvellinum í Vancouver 1. desember sl. og hafa bandarísk yfirvöld farið fram á að fá hana framselda.
Kínversk stjórnvöld hafa hins vegar krafist þess að hún verði látin laus og segja handtöku hennar vera brot á mannréttinum.
Ekki hefur verið greint frá ástæðum handtökunnar og í yfirlýsingu frá Huawei segir að fyrirtækinu sé „ekki kunnugt um að Meng hafi brotið af sér“.
Handtaka Meng á sér stað á viðkvæmum tíma í samskiptum Bandaríkjanna og Kína sem átt hafa í viðskiptastríði undanfarið og hafa bæði ríki sett háa tolla á varning hvort annars. Það virtist þó vera að rofa til og höfðu Donald Trump Bandaríkjaforseti og Xi Jinping Kínaforseti nýlega samþykkt að samninganefndir settust niður og tækju sér 90 daga til að reyna að ná samkomulagi. Handtaka Meng hefur hins vegar nú reitt ráðamenn í Kína til reiði og segir BBC hættu á að hún muni auka enn frekar á spennuna.
Fyrri fréttir hafa gefið í skyn að handtaka Meng kunni að tengjast rannsókn bandarískra yfirvalda á meintum brotum Huawei á viðskiptabanni gegn Íran.
John Bolton, þjóðaröryggisráðgjafi Bandaríkjanna, neitaði hins vegar að tjá sig um slíkt við bandaríska fjölmiðla. Sagði hann þess í stað að almennt séð hefði hann „miklar áhyggjur“ af viðskiptaháttum kínverskra fyrirtækja og mögulegri starsemi þeirra sem „framlengingu“ á Kínastjórn.