Meng Wanzhou, fjármálastjóri raftækjaframleiðandans Huawei sem var handtekin í Kanada í byrjun mánaðarins, var í gær látin laus úr haldi gegn tryggingagreiðslu sem nemur 10 milljónum Kanadadollara (rúmlega 920 milljónir kr.). Meng sætir þó enn farbanni og er gert að vera með ökklaband og vera undir eftirliti lögreglu allan sólarhringinn.
Bandarísk yfirvöld hafa farið fram á að fá Meng framselda til Bandaríkjanna, en þarlend yfirvöld telja Huawei hafa brotið gegn viðskiptabanninu við Íran. Sjálf hafnar Meng, sem er dóttir stofnanda Huawei og varaformaður stjórnar fyrirtækisins, öllum slíkum ásökunum.
Handtaka Meng hefur vakið mikla reiði hjá kínverskum ráðamönnum og hefur aukið nokkuð á spennuna í samskiptum Kína og Bandaríkjanna og Kína og Kanada.
Handtaka Meng á sér stað á viðkvæmum tíma í samskiptum Bandaríkjanna og Kína sem átt hafa í viðskiptastríði undanfarið og hafa bæði ríki sett háa tolla á varning hvort annars. Það virtist þó vera að rofa til áður en Meng var handtekinn og höfðu Donald Trump Bandaríkjaforseti og Xi Jinping Kínaforseti nýlega samþykkt að samninganefndir settust niður og tækju sér 90 daga til að reyna að ná samkomulagi.
Trump sagðist í gær geta gripið inn í mál Meng yrði það til að forðast aukna spennu í samskiptum ríkjanna. „Ég mun gera það sem er gott fyrir landið okkar,“ sagði Trump.