Franska lögreglan hefur skotið til bana árásarmanninn sem hóf skotárás á jólamarkaði í Strassborg á þriðjudagskvöld. Þrír létust í árásinni og þrettán særðust. BBC greinir frá.
Árásarmaðurinn, Cherif Chekatt, hafði verið á flótta frá því hann framdi ódæðisverkið, en BBC greinir frá því að skothljóð hafi heyrst í borginni og að lögregluþyrlur hafi verið á sveimi. Fréttamiðillinn hefur heimildir fyrir því innan úr lögreglunni að Chekatt hafi verið felldur.
Chekatt mun hafa öskrað „Allahu Akbar,“ eða „Guð er mikill,“ áður en hann hóf skotárásina á þriðjudag, en að sögn lögreglu öfgavæddist hann er hann sat í fangelsi fyrir nokkra glæpi, þar á meðal rán.