„Ég fyrirskipaði Michael Cohen aldrei að brjóta lögin. Hann var lögfræðingur og hann á að þekkja lögin.“ Þetta skrifar Donald Trump Bandaríkjaforseti á Twitter í dag. Fyrrverandi lögmaður hans, Cohen, var dæmdur í þriggja ára fangelsi í gær, meðal annars fyrir skattsvik og brot á kosningalögum.
Áður en dómurinn var kveðinn upp gagnrýndi hann forsetann harðlega. Hann sagðist bera ábyrgð á glæpum sínum „þar á meðal þeim sem forseti Bandaríkjanna hefur verið bendlaður við. Það var skylda mín að hylma yfir með hans sóðalegu verknuðum,“ sagði Cohen.
Trump segir að starf Cohen hafi verið að veita lagalega ráðgjöf og á ábyrgð lögmanna væri mikil ef mistök væru gerð. „Þess vegna fá þeir borgað.“
Forsetinn segist ekki hafa brotið kosningalög, enda hafi málin ekki snúið að fjáröflun fyrir kosningabaráttu og að lögfræðingar séu sammála honum. Trump segir Cohen hafa gerst sekan um fjölmörg mál ótengd sér, en að hann hafi játað sekt í tveimur ákæruliðum vegna brota á kosningalögum í þeim tilgangi að koma höggi á forsetann.
„Hann gekkst við þessum sökum einungis til að koma forsetanum í vandræði og til að fá vægari fangelsisdóm.“
I never directed Michael Cohen to break the law. He was a lawyer and he is supposed to know the law. It is called “advice of counsel,” and a lawyer has great liability if a mistake is made. That is why they get paid. Despite that many campaign finance lawyers have strongly......
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) 13 December 2018
....stated that I did nothing wrong with respect to campaign finance laws, if they even apply, because this was not campaign finance. Cohen was guilty on many charges unrelated to me, but he plead to two campaign charges which were not criminal and of which he probably was not...
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) 13 December 2018
....guilty even on a civil basis. Those charges were just agreed to by him in order to embarrass the president and get a much reduced prison sentence, which he did-including the fact that his family was temporarily let off the hook. As a lawyer, Michael has great liability to me!
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) 13 December 2018