Einn af þeim sem komu að morðinu á sádiarabíska blaðamanninum, Jamal Khashoggi, heyrist segja: „Ég kann að skera,“ á hljóðupptöku af morðinu, sem tyrknesk yfirvöld hafa látið í hendur bandarískra og evrópskra embættismanna. Forseti Tyrklands, Recep Tayyip Erdogan, greindi frá þessu í dag. Þetta kemur fram í frétt The Guardian.
Erdogan gagnrýndi jafnframt yfirvöld í Sádi-Arabíu fyrir að vera margsaga varðandi það hvernig Khashoggi var myrtur á ræðismannsskrifstofu Sádi-Araba í Istanbúl í Tyrklandi. Blaðamaðurinn fór á skrifstofuna til að sækja skjöl vegna giftingar sinnar í byrjun október en átti ekki afturkvæmt.
„Bandaríkin, Þýskaland, Frakkland, Kanada, það hafa allir fengið að hlusta. Maðurinn segir greinilega: „Ég kann að skera.“ Þessi maður er hermaður. Þetta er allt á hljóðupptökunni,“ sagði Erdogan í dag. Hann gaf ekki frekari upplýsingar um upptökuna.
Saksóknari í Istanbúl segir að Khashoggi hafi verið kæfður á ræðismannsskrifstofunni áður en lík hans var hlutað í sundur og það látið hverfa. Líkamsleifar Khashoggi hafa ekki fundist.