Þúsundir komu saman í Brussel í dag til að mótmæla samningi Sameinuðu þjóðanna um farendur (e.migration) sem samþykktur var í Marrakesh í Marokkó í síðustu viku. Ísland var meðal þeirra ríkja sem tóku þátt í afgreiðslunni.
Flæmskir hægriöfgaflokkar efndu til mótmælagöngunnar, sem var haldin í nágrenni helstu stofnana Evrópusambandsins, en mótmælendur líkt og aðrir gagnrýnendur samningsins óttast að hann leiði til þess að hælisleitendum fjölgi.
Lögregla beitti bæði táragasi og sprautaði vatni á mótmælendur eftir á átök brutust út. BBC segir um 5.500 manns hafa tekið þátt í mótmælunum. Um 1.000 manns komu þá saman á öðrum stað í miðborginni þar sem hópur fólks hlynnt hælisleitendum kom saman.
164 ríki, þeirra á meðal Ísland, undirrituðu samkomulagið i Marokkó.
Nokkur ríki ESB, m.a. Austurríki, Ítalía, Pólland og Slóvakía, sem og Bandaríkin, neituðu hins vegar að fallast á samkomulagið sem er sagt skapa grundvöll fyrir samvinnu ríkja í millum og fyrir samhæfingu aðgerða í málaflokknum, þá felur hún hins vegar ekki í sér lagalegar skuldbindingar og tekur mið af fullveldisrétti ríkja.