Tala látinna eftir skotárás á jólamarkaði í Strassborg á þriðjudag er komin upp í fimm, en fimmta fórnarlambið lést af sárum sínum í dag. Ellefu til viðbótar særðust í árásinni.
„Bróðir minn Barto Pedro Orient-Niedzielski var að skilja við. Hann þakkar ykkur kærleikann og styrkinn sem þið hafið veitt honum,“ skrifaði bróðir Orient-Niedzielski, sem var frá Póllandi, á Facebook.
Árásarmaðurinn, Cherif Chekatt, var felldur af lögreglu í fimmtudag en hann hafði þá verið á flótta frá því hann framdi ódæðisverkið.
Franska lögreglan handtók foreldra hans, tvo bræður, og þrjá til viðbótar sem voru nánir Chekatt. Greint var hins vegar frá því í gær að fjölskylda Chekatts hefði verið látin laus, en að hinir þrír væru enn í haldi.