Þriðji Kanadamaðurinn hefur verið handtekinn í Kína, samkvæmt fréttum kanadískra fjölmiðla. Handtökurnar eru taldar tengjast handtöku fjármálastjóra Huawei nýverið í Kanada.
Talsmaður utanríkisráðuneytis Kanada staðfestir að ráðuneytið viti af handtökunni en hefur ekki upplýst um hver maðurinn er.
Talskona utanríkisráðuneytis Kína, Hua Chunying, sagði á fundi með blaðamönnum að hún hafi ekki heyrt af málinu.
Kanadískur kaupsýslumaður sem er búsettur í Dandong, Michael Spavor, og Michael Kovrig, sem er fyrrverandi stjórnarerindreki Kanada, hafa verið í haldi í Kína í einhvern tíma.
Samkvæmt kínverskum ríkisfjölmiðlum eru þeir grunaðir um að hafa ógnað öryggi kínverska ríkisins.