Frönsk stjórnvöld munu ekki hætta sinni þátttöku í baráttunni gegn vígasamtökum Ríkis íslams í Sýrlandi. Þetta sagði Evrópumálaráðherra Frakklands í dag, en Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti í gær á Twitter að hann ætli að draga herafla Bandaríkjanna ekki draga herafla sinn til baka frá Sýrlandi og hefur sú ákvörðun hans sætt gagnrýni bæði bandamannaþjóða Bandaríkjanna í Sýrlandsstríðinu, sem og bandarískra þingmanna.
„Við munum að sjálfsögðu halda viðveru okkar í Sýrlandi áfram að svo stöddu,“ sagði Nathalie Loiseau, Evrópumálaráðherra frönsku stjórnarinnar í samtali við CNews sjónvarpsstöðina. „Baráttunni gegn hryðjuverkum er ekki lokið.“
Bresk stjórnvöld, sem einnig eru með hersveitir í Sýrlandi, hafa sömuleiðis dregið í efa þær ástæður sem Trump hefur gefið fyrir að draga heraflann til baka. Sagði Trump á Twitter í gær búið væri að sigra Ríki íslams í Sýrlandi og að það hafi verið eina ástæðan fyrir veru herliðsins þar.
Tobias Ellwood, aðstoðarvarnarmálaráðherra Bretlands, hafnar þeirri fullyrðingu Trump að búið væri að sigra vígasamtökin.
„Ég er mjög ósammála þessu. Þetta hefur ummyndast í aðrar gerði öfgahyggju og ógnin er enn virkilega til staðar,“ hefur Guardian eftir Ellwood.