Fornar mósaikmyndir birtast á ný

Mósaikmyndir frá ofanverðri tólfu öld, á vegg Fæðingarkirkjunnar í Betlehem …
Mósaikmyndir frá ofanverðri tólfu öld, á vegg Fæðingarkirkjunnar í Betlehem sem hafa nú verið hreinsaðar og lagaðar. Heimastjórn Palestínu hefur umsjón með viðgerðunum. AFP

Umfangsmiklum viðgerðum á Fæðingarkirkjunni í Betlehem er nú að mestu lokið en þær hafa staðið yfir í nærri eitt og hálft ár. Mósaikmyndir frá 12. öld, sem lengi hafa verið nánast huldar af sóti frá kertum sem logað hafa í kirkjunni, blasa nú við í allri sinni dýrð.

Áætlað er að myndirnar hafi upphaflega þakið um 2 þúsund fermetra af veggjum dómkirkjunnar en stærstur hluti þeirra hefur eyðilagst af völdum raka, stríðsátaka og jarðskjálfta. Þau myndabrot, sem eftir eru þekja um 125 fermetra og hafa sérfræðingar unnið að því undanfarna 15 mánuði að hreinsa þau.

Frá fjórðu öld

Fyrsta kirkjan á þeim stað þar sem talið var að Jesús hefði fæðst í Betlehem, var reist á fjórðu öld. Upphaflega var talið að sú kirkja hefði brunnið, en sérfræðingar, sem unnið hafa að viðgerðunum nú, segja að engin merki um eld séu sjáanleg. Því sé líklegast að kirkjan hafi hrunið í jarðskjálfta. Kirkjan var endurreist á sjöttu öld og krossfarar byggðu síðan við hana.

Par situr fyrir á mynd í Fæðingarkirkjunni á þeim stað …
Par situr fyrir á mynd í Fæðingarkirkjunni á þeim stað sem Jesús er sagður hafa fæðst. AFP

Þrjár kirkjudeildir hafa aðstöðu í kirkjunni, kaþólska kirkjan gríska rétttrúnaðarkirkjan og armenska kirkjan. Deilur milli þessara kirkjudeilda ollu því, að kirkjunni var nánast ekkert haldið við frá því um miðja 19. öld. Árið 2002 skemmdist kirkjan talsvert að utan þegar í fimm vikna umsátri ísraelska hersins eftir að um 100 Palestínumenn skjóls inni í kirkjunni.

Dýrar viðgerðir

Ítalskir sérfræðingar hreinsa mósaikmyndir á kirkjugólfinu.
Ítalskir sérfræðingar hreinsa mósaikmyndir á kirkjugólfinu. AFP

Betlehem er á Vesturbakkanum svonefnda á heimastjórnarsvæði Palestínumanna. Viðgerðir hófust loks árið 2013 á vegum heimastjórnar Palestínumanna í samvinnu við ítölsk stjórnvöld og með fjárstuðningi frá Páfagarði og fleiri ríkjum. Áætlað er að viðgerðirnar muni kosta um 18 milljónir evra, jafnvirði rúmlega 2,5 milljarða króna.

Bæði lærðir og leikir hafa lýst mikilli hrifningu yfir myndunum sem nú eru komnar í ljós. Asbed Balian, prestur armensku kirkjunnar í Fæðingarkirkjunni, sagðist hafa orðið orðlaus þegar hann sá myndirnar fyrst. „Þetta hefur lyft hugum okkar,“ sagði hann.

Auk mósaikmyndanna hafa sérfræðingarnir einnig gert við málverk frá tólftu öld þegar auðugir pílagrímar réðu listamenn til að mála fjölskyldur þeirra eða dýrlinga og hengja málverkin upp í kirkjunni.

Þessi málverk voru orðin nánast svört af sóti og óhreinindum.

Afif Tweme, sem hefur haft eftirlit með verkinu fyrir hönd heimastjórnarinnar, segir að viðgerðirnar muni án efa hafa jákvæð áhrif á ferðaþjónustu í Betlehem, laða þangað fleiri ferðamenn og vonandi muni sá efnahagslegi ábati draga úr brottflutningum kristinna íbúa bæjarins.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert