Tala látinna eftir gassprengingu í tíu hæða íbúðahúsi í borginni Magnitogorsk í Rússlandi á gamlársdag heldur áfram að hækka og tilkynntu rússneskir embættismenn í morgun að 37 hafi fundist látnir. Sex börn eru meðal hinna látnu.
Fjögurra er enn saknað en sex hafa fundist á lífi í rústunum, þar á meðal tíu mánaða gamall drengur sem bjargað var á nýársdag.
Um 1.100 manns búa í fjölbýlishúsinu og eru tugir heimilislausir vegna sprengingarinnar. Björgunarstarfi er ekki lokið og þurfa björgunaraðilar ekki einungis að glíma við mjög erfiðar aðstæður svo sem óstöðugt brak úr byggingunni og hættu á frekara hruni hússins heldur glíma þeir við lamandi frost sem er á bilinu -18 til -27 gráður.