Belgíska lögreglan hefur handtekið mann sem grunaður er um aðild að hryðjuverkaárásunum í París 13. nóvember 2015. Alls létust 130 í árásunum, þar af 90 í Bataclan. Alls særðust 413 í árásinni, þar af tæplega 100 mjög alvarlega. Sjö árásarmenn létust í árásinni.
Maðurinn sem er í haldi er ákærður fyrir að hafa útvegað árásarmönnunum vopn, að sögn saksóknara.
Talsmaður ríkissaksóknara Belgíu, Eric Van Duyse, segir að maðurinn hafi verið handtekinn fyrir jól og að hann sé grunaður um að hafa útvegað sjálfvirka riffla fyrir árásina.