Jasmine Lennard, fyrrverandi kærasta knattspyrnumannsins Cristiano Ronaldo, segir að Ronaldo sé lygari og geðsjúklingur. Hún styður Kathryn Mayorga, sem sakar Ronaldo um nauðgun.
Kathryn Mayorga segir að Ronaldo hafi nauðgað henni á hóteli í Las Vegas árið 2009. Ronaldo hefur neitað ásökunum hennar. Samkvæmt Der Spiegel borgaði Ronaldo 375 þúsund Bandaríkjadali gegn því að Mayorga kæmi ekki fram með ásakanir á hendur honum á opinberum vettvangi.
Lennard tjáði sig á Twitter-síðu sinni í gær þar sem hún bauð Mayorga hjálp en lögreglan í Las Vegas tók síðasta haust að nýju upp rannsókn vegna ásakana Mayorga.
„Ég hef upplýsingar sem ég trúi að hjálpi málstað þínum og ég vil hjálpa þér,“ skrifaði Lennard á Twitter þar sem hún beindi orðum sínum til Mayorga.
On that note and after much thought i am reaching out to Kathryn Mayorga and her legal team to offer my assistance in her rape allegation against @Cristiano please contact me. I have information that I believe will be beneficial to your case and I would like to help you.
— QUEEN OF THE DAMNED (@Jasminelennard) January 8, 2019
„Nei þýðir nei. Ef einhver biður þig um að stoppa áttu að stoppa. Ef þú heldur áfram kynferðislegum athöfnum á meðan kona öskrar á þig að stoppa ertu nauðgari og skrímsli og mér gæti ekki verið meira sama hversu góður þú ert í fótbolta,“ skrifaði Lennard.
No it doesn’t. The word NO means NO. The word STOP means STOP. If you continue a sexual act while a woman is screaming for you to stop you are a rapist and a monster and I don’t give a fuck how good you can kick a football or sing a song. https://t.co/DGjPZGeht4
— QUEEN OF THE DAMNED (@Jasminelennard) January 8, 2019
Hún segist hafa átt í nánast daglegum samskiptum við Ronaldo undanfarna 18 mánuði og kveðst hafa sannanir fyrir máli sínu og segist ekki hafa áhyggjur af málsókn frá Ronaldo vegna skrifanna.
„Allt líf hans er lygi. Helvítis geðsjúklingur,“ skrifaði Lennard og bætti við að Ronaldo hafi sagt henni þegar þau voru par að hann myndi láta skera hana í búta ef hún hitti annan mann.
Acknowledges and shares about having SERIOUS mental health issues. All the LIES surrounding his children and their baby mothers. He’s a BULLY and he’s a LIAR. His whole life is a LIE. Fucking psychopath.
— QUEEN OF THE DAMNED (@Jasminelennard) January 8, 2019