Kanadísk stjórnvöld hafa ákveðið að veita Rahaf Mohammed al-Qunun, 18 ára hælisleitanda frá Sádi-Arabíu, hæli í landinu.
Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, tilkynnti þetta í dag.
„Kanada hefur verið skýrt í afstöðu sinni um að berjast fyrir mannréttindum og réttindum kvenna um heim allan,“ sagði Trudeau. „Þegar Sameinuðu þjóðirnar báðu okkur um að veita al-Qunun hæli ákváðum við að verða við beiðninni.“
Hún var stöðvuð á flugvellinum í Bangkok síðustu helgi og sagðist vera í lífshættu á heimili sínu og þar sem hún hafi verið beitt andlegu og líkamlegu ofbeldi. Stutt er síðan hún varð að loka Twitter-aðgangi sínum vegna líflátshótana.