Rahaf Mohammed al-Qunun, sem óttast um líf sitt og flúði fjölskyldu sína í Kúveit um helgina, hefur lokað Twitter-aðgangi sínum vegna fjölda líflátshótana.
Qunun, sem er 18 ára og frá Sádi-Arabíu, var stöðvuð á flugvellinum í Bangkok síðustu helgi og segist hún vera í lífshættu á heimili sínu og þar sé hún beitt andlegu og líkamlegu ofbeldi.
Í fyrstu ætluðu taílensk yfirvöld að vísa henni úr landi og senda til fjölskyldunnar að nýju en vegna umfjöllunar, fyrst á samfélagsmiðlum og svo fjölmiðlum, var hætt við það á mánudagsmorgun. Qunun hefur, vopnuð snjallsíma og myllumerki, leyft heiminum að fylgjast stöðugt með máli sínu.
Í síðustu færslunni sem birtist á Twitter-aðgangi hennar í dag, áður en honum var lokað, sagði Qunun að hún hefði bæði góðar og slæmar fréttir að færa. Fylgjendur hennar, sem eru orðnir yfir hundrað þúsund, fengu hins vegar aldrei að heyra fréttirnar.
„Rahaf hefur fengið líflátshótanir og þess vegna hefur hún lokað aðgangi sínum, vinsamlegast bjargið lífi hennar,“ segir Twitter-notandinn nourahfa313.
Aðstoðarframkvæmdastjóri Mannréttindavaktarinnar í Asíu, Phil Robertsson, staðfestir í samtali við AFP-fréttastofuna að Qunun hafi borist líflátshótanir og ítrekar hann að líflátshótunum sem berast í gegnum lýðnetið verði að taka alvarlega.
Í fyrradag staðfesti Flóttamannaaðstoð Sameinuðu þjóðanna að hún félli undir skilgreiningu SÞ á flóttafólki og því beri aðildarríkjum samningsins að veita henni vernd. Fréttastofa CNN hefur heimildir fyrir því að stjórnvöld í Canberra hafi samþykkt að veita Qunun hæli í Ástralíu. Þá hafa stjórnvöld í Kanada einnig boðið henni hæli en Qunun sagði í færslu á Twitter í vikunni að hana langaði helst að fara til Kanada.