Borgarstjóri pólsku borgarinnar Gdansk, Pawel Adamowicz, varð fyrir stunguárás þegar hann flutti ávarp á sviði á góðgerðarsamkomu í borginni í kvöld. Endurlífgunartilraunum var beitt á staðnum áður en Adamowicz var fluttur á spítala og er hann í lífshættu.
27 ára karlmaður hefur verið handtekinn í tengslum við árásina og er hann með sakaferil á bakinu. Maðurinn var með fjölmiðlapassa sem veitti honum aðgang að sviðinu, að sögn pólskra fjölmiðla. Maðurinn kallaði yfir mannfjöldann að hann hafi verið ranglega hnepptur í fangelsi af síðustu ríkisstjórn, sem leidd var af fyrrverandi flokki borgarstjórans.
Mörg hundruð manns voru viðstödd þegar árásin átti sér stað og sást borgarstjórinn halda um kviðinn. Ávarp borgarstjórans var hluti af lokaathöfn árlegrar góðgerðarhátíðar þar sem fjármunum er safnað fyrir barnaspítala í borginni.
Adamowicz, sem er 53 ára, hefur verið borgarstjóri í Gdansk í 20 ár. Nafntogaðir stjórnmálamenn, svo sem Mateusz Morawiecki, forsætisráðherra Póllands, og Donald Tusk, forseti leiðtogaráðs Evrópusambandsins, hafa fordæmt árásina á samfélagsmiðlum og senda Adamowicz góðar kveðjur.
Atak na życie i zdrowie Pawła Adamowicza jest godny najwyższego potępienia. Zobligowałem ministra @jbrudzinski do przekazywania mi na bieżąco wszelkich informacji dotyczących tej sytuacji. Myślami i modlitwą jesteśmy teraz z prezydentem Adamowiczem.
— Mateusz Morawiecki (@MorawieckiM) January 13, 2019
Módlmy się wszyscy za Prezydenta Adamowicza. Pawle, jesteśmy z Tobą.
— Donald Tusk (@donaldtusk) January 13, 2019