Filippus prins, hertoginn af Edinborg og eiginmaður Elísabetar Englandsdrottningar, slapp ómeiddur þegar hann lenti í árekstri í dag skammt fyrir utan sveitasetur konungsfjölskyldunnar í Norfolk á Englandi. Tveir bílar lentu saman og var lögreglan kölluð til en engan sakaði, samkvæmt upplýsingum frá talsmanni konungshallarinnar.
Filippus og Elísabet Englandsdrottning hafa dvalið á sveitasetrinu frá jólum. Elísabet hefur sinnt sínum konunglegu skyldum, þar á meðal að mæta til messu á jóladag. Filippus, sem er 97 ára, hélt sig til hlés en hann settist í helgan stein í ágúst 2017.
Filippus hefur komið fram í 22.219 opinberum verkefnum konungshallarinnar síðan eiginkona hans varð drottning árið 1952 og er lengst sitjandi drottningarmaður í sögu Bretlands. Þá hefur hann farið í 637 opinberar ferðir erlendis og flutt 5.496 ræður.