21 lést í bílsprengjuárás í höfuðborg Kólumbíu, Bogota, í gærkvöldi. Árásin beindist að þjálfunarbúðum lögreglumanna í borginni. 68 særðust í árásinni.
Meðal þeirra sem létust er árásarmaðurinn. Af þeim 68 sem særðust hafa 58 verið útskrifaðir af sjúkrahúsi.