Roger Stone, fyrrverandi ráðgjafi Donalds Trump Bandaríkjaforseta, sem handtekinn var á Flórída fyrr í dag hefur nú verið látinn laus gegn greiðslu tryggingagjalds sem nemur hálfri milljón dollara. Fréttastofa CNN greinir frá.
Stone, sem var einn af nánustu ráðgjöfum Trump um tíma, var handtekinn að beiðni Roberts Mueller, sérstaks saksóknara bandarísku alríkislögreglunnar FBI í rannsókn á meintum afskiptum Rússa af bandarísku forsetakosningunum 2016 og tengsla þeirra við framboð Trumps.
Ákæran gegn Stone er í sjö liðum og er hann m.a. ákærður fyrir að gefa út ósannar yfirlýsingar, hindra framgang réttvísinnar og fyrir að reyna að hafa áhrif á framburð vitna.
Stone ræddi við fréttamenn fyrir utan dómssalinn eftir að hann hafði verið látinn laus. Þar hélt hann fram sakleysi sínu og kvaðst vera ranglega ásakaður og að lögregluaðgerðin heima hjá sér í morgun hefði valdið honum óhugnaði.
Sagðist Stone munu lýsa yfir sakleysi sínu og að hann telji ákærurnar gegn sér byggjast á pólitískum grunni. Þá ítrekaði Stone að hann muni ekki bera vitni gegn Trump.
Hópur fólks hafði safnast saman fyrir utan dómshúsið og hrópaði „læsið hann inni“ á meðan Stone ræddi við fjölmiðla. Er það vísun í kröfðu stuðningsmanna Trump um forsetaframboðinu að Hillary Clinton mótframbjóðandi hans yrði sett bak við lás og slá.
BBC segir ákærurnar gegn Stone m.a. tengjast tölvuárás á þingflokk Demókrata, en póstar margra forsvarsmanna flokksins voru birtir á vef Wikileaks í aðdraganda kosninganna.
Greatest Witch Hunt in the History of our Country! NO COLLUSION! Border Coyotes, Drug Dealers and Human Traffickers are treated better. Who alerted CNN to be there?
— Donald J. Trump (@realDonaldTrump) January 25, 2019
Trump fordæmdi Rússarannsóknina enn á ný í dag er hann frétti af handtöku Stone og sagði á Twitter rannsóknina vera „mestu nornaveiðar í sögu lands okkar“.