Tíu manna kviðdómur í máli fyrrverandi yfirlögregluþjónsins í Ósló, Eirik Jensens, kvað nú í hádeginu upp þann úrskurð að Jensen skyldi vera sýkn af hlutdeild í innflutningi á 14 tonnum af hassi sem hann hafði hlotið 21 árs dóm fyrir í Héraðsdómi Óslóar haustið 2017. Kviðdómur vildi hins vegar sakfella fyrir stórfellda spillingu þar sem refsiramminn er tíu ár.
Kristel Heyerdahl dómsformaður tók sér tveggja stunda frest ásamt meðdómurum sínum til að taka afstöðu til úrskurðar kviðdóms og var niðurstaðan lögð fram núna klukkan 14, 13 að íslenskum tíma: Niðurstöðu kviðdóms var þar vikið til hliðar hvað fíkniefnahlutann snertir. „Dómurinn telur það hafið yfir vafa að Jensen er sekur um fíkniefnabrot og víkur niðurstöðu kviðdóms til hliðar. Málið verður rekið á nýjan leik frá grunni.“
Í 659 áfrýjunarmálum frá 2013 til þessa dags hefur dómari hundsað úrskurð kviðdóms 37 sinnum, eða í 5,6 prósentum tilvika, 38 sinnum að meðtöldum úrskurði dagsins í dag. Átján sinnum vék dómari til hliðar sýknuúrskurði kviðdóms, nú 19 sinnum, og 19 sinnum sektarúrskurði.
Fjallað verður ítarlegar um mál Jensens hér á mbl.is í dag.