Að minnsta kost 35 eru látin til viðbótar við þau tæplega 70 sem létust vegna áfengiseitrunar í norðausturhluta Indlands í gær og er fjöldi látinna því orðinn 133. Auk þeirra látnu liggja yfir 200 manns illa haldin á sjúkrahúsum á svæðinu.
Tíu hafa verið handtekin vegna málsins og sýni úr áfenginu sem fólkið drakk hefur verið sent til rannsóknar.
Á meðal látinna eru bæði karlar og konur sem flest störfuðu við teframleiðslu á svæðinu, en talið er að 40% alls áfengis sem neytt er á Indlandi sé framleitt með ólöglegum hætti. Aðeins rúmar tvær vikur eru síðan um hundrað manns létust vegna svipaðrar eitrunar í norðurhluta landsins.