Sonur Shamimu Begum, breskrar konu sem flúði til Sýrlands er hún var 15 ára til að ganga til liðs við Ríki íslams, er látinn. Þetta staðfestir talsmaður sýrlensku lýðræðisaflanna SDF, sem reka flóttamannabúðirnar sem Begum dvelur í, í samtali við BBC.
Tasnime Akunjee, lögfræðingur Begum fjölskyldunnar, hafði áður sagt að margt benti til þess að drengurinn væri látinn, en að sér hefði ekki tekist að fá það endanlega staðfest. SDF staðfestu lát drengsins hins vegar nú í kvöld
Drengurinn, sem fæddist í flóttamannabúðunum, var innan við þriggja vikna gamall er hann lést og er banamein hans á dánarvottorði sagt vera lungnabólga.
BBC hefur eftir sjúkraliða Rauða hálfmánans, sem starfar í flóttamannabúðunum, að drengurinn hafi átt við öndunarörðugleika að stríða. Farið var með hann til læknis í gærmorgun sem sendi hann á sjúkrahús, en hann lést síðar sama dag að sögn sjúkraliðans.
Drengurinn sem var nefndur Jarrah var þriðja barnið sem Begum eignaðist eftir að hún flúði til Sýrlands, en hin tvö börnin voru látin áður en hún kom flúði frá kalífadæmi Ríkis íslams.
Begum snéri aftur til búðanna síðar sama dag og var drengurinn grafinn þar í gær að því er BBC greinir frá.
Begum hefur biðlað til breskra stjórnvalda um að fá að snúa aftur heim, en þess í stað hefur ríkisborgararéttur hennar verið afturkallaður.
Sajid Javid, innanríkisráðherra Bretlands, sem ógilti ríkisborgararétt Begum sagði áður en lát drengsins var staðfest að hann hefði „ekkert nema samúð með börnunum sem dregin væru inn í þetta“.