CNN hefur leiðrétt frétt um að Evrópusambandið ætli að krefja bandaríska ríkisborgara um vegabréfsáritun. Hið rétta er að um ferðaheimild er að ræða svipaða þeirri og til að mynda Íslendingar þurfa að greiða fyrir heimsæki þeir Bandaríkin eða Kanada.
ESB tilkynnti í fyrra að í undirbúningi væri kerfi sem ber nafnið ETIAS (European Travel Information and Authorisation System) og er að fyrirmynd ESTA-kerfisins bandaríska. Þá eru svipuð kerfi til staðar í Kanada og Ástralíu, líkt og kom fram í frétt mbl.is í fyrra.