Umdeildur slóvaskur viðskiptamógúll hefur verið ákærður fyrir að fyrirskipa morðið á rannsóknarblaðamanninum Jan Kuciak og unnustu hans. Þau fundust látin á heimili sínu í febrúar í fyrra.
Saksóknari segir að Marian Kocner hafi látið myrða Kuciak og unnustu hans og ástæðan hafi verið störf Kucias en Kocner var framkvæmdastjóri fyrirtækis sem lokaði fyrir tveimur árum.
Kocner var í varðhaldi þegar hann var ákærður, 8. mars, vegna efnahagsbrota. Síðasta greinin sem birtist eftir Kuciak meðan hann lifði var um Kocner og meinta spillingu og svindl hans.
Kuciak var að rannsaka spillingu í stjórnkerfi landsins þegar hann var myrtur og var hann að skrifa grein um tengsl ráðgjafa forsætisráðherrans við ítölsku mafíuna. Greinin birtist að honum látnum.