Ný heimildarmynd, Älska mig för den jag är, um sænska söngkonu sem var ítrekað beitt ofbeldi af hálfu sambýlismanns, hefur vakið mikla athygli í Svíþjóð og beint sjónum almennings að heimilisofbeldi í landinu.
Tilkynningum um heimilisofbeldi hefur fækkað frá árinu 2015 en það ár kynnti sænska ríkisstjórnin aðgerðaáætlun til þess stöðva heimilisofbeldi.
Árið 2017 bárust lögreglu tæplega 10 þúsund tilkynningar um heimilisofbeldi en í rannsókn frá árinu 2014 kom fram að 14% kvenna höfðu orðið fyrir ofbeldi eða ofbeldishótunum í sambandi.
Heimildarmyndin um Josefin Nilsson, sem var vel þekkt söngkona í heimalandinu, var frumsýnd í SVT Play á föstudag en verður sýnd á SVT2 29. mars. Nilsson lést árið 2016, aðeins nokkrum vikum fyrir 47 ára afmælið, en banamein hennar var ofskömmtun lyfseðilsskyldra lyfja.
Í myndinni, sem byggir á óútgefinni sjálfævisögu Nilsson sem hún vann að er hún lést, segja systir hennar og vinir frá ofbeldinu sem söngkonan varð fyrir af hálfu fyrrverandi sambýlismanns. Maðurinn er einnig þekktur leikari í Svíþjóð en ekki á alþjóðavísu. Hann var dæmdur fyrir heimilisofbeldi í garð Nilsson undir lok tíunda áratugarins en fékk aðeins þriggja mánaða dóm. Nilsson fékk aftur á móti áverka sem aldrei læknuðust. Nafn ofbeldismannsins var ekki gefið upp í sænskum fjölmiðlum á sínum tíma.
Marie Nilsson-Lind lýsir því í heimildarmyndinni hvernig maðurinn, sem systir hennar var „brjálæðislega“ ástfangin af, beitti Nilsson líkamlegu og andlegu ofbeldi.
Hún fékk aldrei bót meina sinna, segir Marie Nilsson-Lind. Hann gekk í skrokk á henni og auk þess glímdi Nilsson við áfallastreituröskun í kjölfarið og sálrænir áverkar hennar greru aldrei.
Strax á laugardag hófust mótmæli við konunglega leikhúsið í Stokkhólmi og í gær ákváðu stjórnendur þess að hætta sýningum á leikriti þar sem ofbeldismaðurinn fór með hlutverk eftir fjölmenn mótmæli fyrir utan leikhúsið og harða gagnrýni í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum.
Bætt við klukkan 9:58 - fréttin hefur verið uppfærð því ofbeldismaðurinn var ekki rekinn frá leikhúsinu heldur var sýningum hætt á verkinu.
Menningarmálaráðherra Svíþjóðar, Amanda Lind, ætlar að funda með stjórnendum leikhúsa landsins á næstu dögum og fyrsti fundurinn verður í dag með stjórnendum konunglega leikhússins. Ræða á hvernig hægt sé að berjast gegn kynferðislegu ofbeldi og áreitni innan veggja leikhúsanna.
Dómsmálaráðherra Svíþjóðar, Morgan Johansson, fagnar því að heimildarmyndin veki jafn mikla athygli á heimilisofbeldi og raun ber vitni. Meira verði að gera til þess að koma í veg fyrir það.
„Við karlmenn verðum að breyta viðhorfi okkar til þess að þetta hætti,“ sagði Johansson í viðtali við TT-fréttastofuna í gær. Hann segir að fjölmargar breytingar hafi verið gerðar á lögum landsins á undanförnum árum til þess að koma í veg fyrir slíkt ofbeldi. „En ég vildi óska þess að fleiri karlar stigju fram og fordæmdu niðurlægingu og misnotkun kvenna sem jafnvel á sér stað í daglegu lífi.“