Ljós voru slökkt á mörgum af þekktustu byggingum heims í gær til að vekja fólk til meðvitundar um orkunotkun. Þetta var í þrettánda sinn sem Jarðarstundin var haldin á vegum World Wildlife Fund (WWF).
Ljósmyndarar voru tilbúnir með vélarnar víða um heim til að fanga augnablikið á filmu þegar byggingarnar slökktu á sér ein af annarri. Myndir frá AFP-fréttaveitunni má sjá hér að neðan:
Bygging höfuðstöðva Sameinuðu þjóðanna sker sig úr byggingaskaranum á Manhattan í New York. Stuttu síðar voru ljósin í Empire-state turninum einnig slökkt.
AFP
Helsta kennileit Parísarborgar, Eiffel-turninn sjálfur, var myrkvaður í gær.
AFP
Kremlin í Moskvu fyrir og eftir að ljós voru slökkt.
AFP
Marina Bay Sands-hótelið er þekkt víða um heim fyrir íburð og glæsileika.
AFP
Marina Bay Sands-hótelið var öllu látlausara en vanalega í gærkvöldi.
AFP
Á ljóskösturunum sem alla jafna lýsa upp Notre-Dame kirkjuna í París var einnig slökkt í gær.
AFP
Chhatrapati Shivaji-lestarstöðin í Mumbai á Indlandi.
AFP