Aðeins einn þingmaður nýsjálenska þingsins greiddi atkvæði gegn nýrri hertri vopnalöggjöf sem var lögð fram á þinginu í dag.
119 þingmenn af 120 greiddu atkvæði með frumvarpinu, sem felur í sér að hálfsjálfvirkir rifflar og hríðskotarifflar verða bannaðir í landinu.
Jacinda Ardern, forsætisráðherra landsins, kynnti breytingar á vopnalöggjöfinni fyrir um tíu dögum í kjölfar hryðjuverkanna í Christchurch 15. mars þegar 50 létust í skotárásum vígamanns í tveimur moskum í borginni.
„Allt of margir í þessu landi hafa greiðan aðgang að hættulegum skotvopnum og almenningi stafar ógn af því,“ sagði Stuart Nash, ráðherra löggæslumála, þegar hann greiddi atkvæði með frumvarpinu. „Við verðum að bregðast hratt við.“
David Seymour, eini þingmaður hægriflokksins ACT, greiddi atkvæði gegn frumvarpinu og sagði hann löggjöfina einkennast af fljótfærni. „Það er mikilvægt að við höldum í hefðir um allsgáða og rótgróna lagasetningu öllum stundum, en sérstaklega á þessari stundu,“ segir í tilkynningu frá Seymour.
Seymore hafði hugsað sér að tefja málsmeðferð frumvarpsins í þinginu en missti af tækifærinu þar sem hann mætti of seint í þingsal eftir að hafa útskýrt áætlun sína fyrir fjölmiðlum.
Frumvarpið á eftir að fara í gegnum frekari umræðu auk tveggja atkvæðagreiðslna áður en það verður að lögum og á Ardern von á því að nýju lögin taki gildi 11. apríl.