Ástralskur unglingur sem kastaði eggjum í ástralska öldungadeildarþingmanninn Fraser Anning sleppur með áminningu.
William Connolly, sem er orðinn þekktur sem „eggjadrengurinn“ kramdi egg á höfði Anning á blaðamannafundi í Melbourne 16. mars. Anning svaraði fyrir sig með því að slá Connolly utan undir tvívegis. Daginn áður sagði Anning í ræðu á þingi að ástæðan fyrir árásunum þann sama dag í Christchurch væri heimild til handa múslimum til að flytja til landsins. Vísar hann þar til hryðjuverka sem kostuðu 50 manns lífið en árásarmaðurinn aðhyllist yfirburði hvíta kynstofnsins.
Connolly var hylltur sem hetja á samfélagsmiðlum og söfnuðust 80 þúsund Ástralíudalir, sem svarar til um 7 milljóna króna, til að greiða lögfræðikostnað hans vegna eggjakastsins. Peningarnir verða notaðir til þess að styðja fórnarlömb árásanna og fjölskyldur þeirra.
Í tilkynningu frá ríkislögreglustjóra í Victoria verður Connolly ekki ákærður og það sama eigi við um Anning. Það var niðurstaða lögreglunnar eftir að hafa rannsakað málið og farið yfir myndefni því tengdu. Um sjálfsvörn hafi verið að ræða hjá Anning en tvítugur maður hefur verið ákærður fyrir árás í kjölfar atviksins fyrir að hafa ráðist á Connolly.