Þrjár þýskar og spænskar þingkonur mótmæltu handtöku Julian Assange stofnanda Wikileaks fyrir framan öryggisfangelsi sem hann situr í í London í dag. Þær hafa árangurslaust reynt að fá að hitta hann í fangelsinu. Þær krefjast þess að Bretar og Evrópusambandið beiti sér fyrir því að hann verði ekki framseldur til Bandaríkjanna.
„Við þurfum að bregðast við af mannúðarástæðum þar sem Assange er í varðhaldi í Bretlandi. Sérstaklega þar sem hátt settir embættismenn Bandaríkjanna, þar á meðal Donald Trump forseti Bandaríkjanna, hafa hótað honum dauða,“ sagði hin spænska Ana Miranda.
Heike Hansel, þingmaður í vinstri flokknum Die Linke, sagði að stjórnvöld í Ekvador stunduðu upplýsingafölsun til að varpa ábyrgðinni af sjálfum sér í þessu máli.
Julian Assange var í sendiráði Ekvador í London en ekvadorsk yfirvöld hleyptu bresku lögreglunni inn í sendiráð þeirra í síðustu viku þar sem breska lögreglan tók Assange höndum.