Skólar í Denver í Colorado-ríki í Bandaríkjunum eru lokaðir í dag þar sem alríkislögreglan leitar 18 ára konu sem talið er að „trúðverðug ógn“ stafi af. Konan, Sol Pais, er sögð haldin þráhyggju gagnvart skotárásinni sem framin var í Columbine-menntaskólanum árið 1999. Á laugardaginn, 20. apríl, verða akkúrat 20 ár liðin frá árásinni.
Pais ferðaðist frá Flórída til Colorado þar sem hún keypti haglabyssu og skotfæri, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu. „Hún er vopnuð og álitin stórhættuleg,“ segir í tilkynningu frá lögreglustjóranum í Jefferson-sýslu. Myndum af Pais hefur verið dreift um ríkið og á samfélagsmiðlum. Pais sást síðast í Colorado á mánudagskvöld.
"Massive manhunt" for 18-year-old Sol Pais as threats close Columbine and other Denver-area schools https://t.co/iSXjDRge0N pic.twitter.com/ubNpBzVqBg
— CBS News (@CBSNews) April 17, 2019
Ógnin beinist ekki beint að Columbine-menntaskólanum, en almannavarnadeild ríkisins segir að öllum skólum í ríkinu hafi verið lokað vegna öryggisráðstafana. Ljóst er þó að töluverðs skjálfta og jafnvel ótta gætir í ríkinu þessa dagana þegar þess er minnst að 20 ár eru liðin frá því að tveir nemendur við Columbine-skólann myrtu tólf skólafélaga sína og einn kennara, áður en þeir tóku eigin líf á bókasafni skólans. Skotárásin var sú mannskæðasta í sögu Bandaríkjanna á þeim tíma.