Reiði þeirra nemenda sem taka þátt í skólaverkföllum fyrir lofslagið er svo „sannarlega réttlætanleg“, segir sjónvarpsmaðurinn heimsþekkti, sir David Attenborough. Eldri kynslóðir hafi unnið jörðinni mikinn skaða og þeir sem hafni þeirri mótmælabylgju námsmanna sem nú fer um heiminn séu einfaldlega bölsýnismenn.
“[Unga fólkið] skilur einfaldleika vísindauppgötvana og hvernig við reiðum okkur á náttúruna,“ hefur Guardian eftir Attenborough. „Mín eigin kynslóð er ekki gott dæmi um þennan skilning. Við höfum gert hræðilega hluti.“
Sagði Attenborough í hlaðvarpsviðtali við Christiana Figueres fyrrverandi umhverfisstjóra Sameinuðu þjóðanna, lofslagsmótmæli unga fólksins vera virkilega hvetjandi. „Þetta er ein helsta ástæða þess að ég tel um framför að ræða. Ef framfarir eiga sér ekki stað með æskunni, þá er þetta búið.“
Talið er að skólaverkföll verði haldin í 485 borgum og bæjum í 72 löndum í dag, samkvæmt vefsíðunni Fridays for Future, en 36 vikur eru nú frá því að upphafsmaður skólaverkfallanna, hin sænska Greta Thunberg mótmælti fyrst fyrir utan sænska þinghúsið á föstudegi. Thunberg sagði breska þinginu í vikunni að þingmenn hefðu logið að fólki og veitt því falska von.
„Reiði þeirra á svo sannarlega rétt á sér. Það leikur enginn vafi á því,“ sagði Attenborough. „Einhverjir bölsýnismenn munu reyna að hunsa [þá sem taka þátt í skólaverkföllum] og segja að þá skorti skilning á heiminum og hvernig hann virkar. Unga fólkið kann að skorta reynsluna, en það hefur skýra sýn og sér kannski skýrar en við hin sem erum búin að vera hér lengur. Við sem eldri erum ættum að hlusta á hvað það er að segja.“
Attenborough gaf nýlega út harðorðustu yfirlýsingu sína til þessa um þá ógn sem heiminum stafar af loftslagsbreytingum. Í þættinum Climate Change – The Facts, sem um þrjár milljónir manna horfðu á er hann var sýndur á BBC, útlistar Attenborough umfang þeirra erfiðleikatíma sem jörðin standi nú frammi fyrir.
Segir hann jarðarbúa standa frammi fyrir „óafturkræfum skaða á náttúrunni og samfélagslegu hruni“. Enn sé þó von, svo framarlega sem næsta áratug verði gripið til róttækra aðgerða til að takmarka áhrifin.
„Þetta kann að hljóma skelfilega, en það eru vísindalegar sannanir fyrir því að ef við grípum ekki til róttækra aðgerða innan næstu tíu ára þá kunnum við að standa frammi fyrir óafturkræfum skaða á lífríkinu og hruni mannlegs samfélags,“ sagði Attenborough.
Sagði Attenborough við Figueres að aðgerðir til að stöðva loftslagsbreytingar og eyðingu náttúrunnar vera nauðsynlegar. „Við eigum einskis annars kost ef við viljum lifa af. Við höfum siðferðlega skyldu og það væri okkur til ævarandi skammar að viðurkenna það ekki.“